Um stefnu þessa
Við tökum alvarlega þær skyldur sem fylgja persónuvernd og öryggi persónuupplýsinga og meðhöndlum þær persónuupplýsingar sem okkur berast í gefnum vefinn faggreinar.is (hér eftir nefndur „vefurinn“) ísamræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Í persónuverndarstefnu þessari förum við yfir hvaða upplýsingar við skráum með hvaða hætti og í hvaða tilgangi.
Ábyrgðaraðili
Baldur Sæmundsson, kt. 030263-3329 rekur vefinn faggreinar.is og er ábyrgðaraðili að vinnslu þeirra persónuupplýsinga sem veittar eru í gegnum vefinn og í tengslum við notkun hans. Baldur er kennari á matvælasviði við Hótel- og matvælaskólann.
Skilgreiningar
Vefurinn
Vefurinn faggreinar.is er námsgagnavefur fyrir nemendur á matvælasviði við Hótel- og matvælaskólann.
Persónuupplýsingar
Persónuupplýsingar eru sérhverjar persónugreindar eða persónugreinanlegar upplýsingar, þ.e. upplýsingar sem rekja má beint eða óbeint til tiltekins einstaklings, svo sem tilvísun í auðkenni eins og nafn og kennitölu, staðsetningargögn, netauðkenni eða fleiri þætti sem einkenna hann í líkamlegu, lífeðlisfræðilegu, erfðafræðilegu, andlegu, efnalegu, menningarlegu eða félagslegu tilliti.
Tæknilegar upplýsingar
Notkunargögn eru skráð sjálfkrafa þegar þú heimsækir vefinn okkar (t.d. IP-tala og tölfræðigögn). Við tengjum þessi gögn aldrei við persónuupplýsingar þínar.
Vafrakökur
Vafrakökur (cookies) eru upplýsingaforrit sem vafraforrit vista á notendatölvum og snjalltækjum. Þær hafa ákveðið gildistímabil og renna út af því loknu.
Ábyrgðaraðili
Einstaklingur, lögaðili, stjórnvald eða annar aðili sem ákveður einn eða í samvinnu við aðra tilgang og aðferðir við vinnslu persónuupplýsinga.
Vinnsluaðili
Einstaklingur eða lögaðili, stjórnvald eða annar aðili sem vinnur með persónuupplýsingar á vegum ábyrgðaraðila. Við kunnum að miðla persónuupplýsingum til þriðja aðila (vinnsluaðila sem uppfyllir öll skilyrði) sé um að ræða þjónustuaðila.
Vinnsla
Vinnsla persónuupplýsinga vísar til aðgerðar eða röð aðgerða þar sem persónuupplýsingar er unnar, hvort sem vinnslan er sjálfvirk eða ekki.
Skráður einstaklingur (eða „hinn skráði“)
Einstaklingur eða sem á í samskiptum við okkur vegna þeirrar þjónustu sem veitt er í gegnum vefinn faggreinar.is
Hvaða persónuupplýsingum söfnum við og í hvaða tilgangi
Við söfnum og varðveitum ýmsar persónuupplýsingar í mismunandi tilgangi, meðal annars til að veita umbeðna þjónustu og bæta heimasíðuna og þjónustuna.
Upplýsingar sem við söfnum
Persónu- og samskiptaupplýsingar
Til þess að nota námsgagnavefinn faggreinar.is, þarf að stofna aðgang sem inniheldur persónuupplýsingar. Persónuupplýsingum er einnig safnað þegar einstaklingar eiga í samskiptum við okkur í gegnum heimasíðuna eða tölvupóst, þá skráum við persónuupplýsingar svo við getum haft samband við þig og/eða auðkennt þig („hinn skráði“) og veitt umbeðna þjónustu. Þær persónuupplýsingar sem við skráum eða notum geta meðal annars verið:
- Nafn
- Kennitala
- Netfang
- Lykilorð
- Samskiptasaga
Tæknilegar upplýsingar
Þegar þú heimsækir vefinn okkar þá söfnum við gögnum sjálfkrafa sem fela í sér tæknilegar upplýsingar varðandi þann búnað sem þú tengist með og hvernig þú ferðast um vefinn. Þessi gögn geta innihaldið IP-tölu, tegund vafra, síðurnar sem þú skoðaðar, tíma og dagsetningu heimsóknar, tíma sem þú varðir á þessum síðum sem og aðrar upplýsingar. Við tengjum þessi gögn aldrei við persónuupplýsingar þínar.
Vafrakökur
Vafrakökur (cookies) eru upplýsingaforrit sem vafraforrit vista á notendatölvum og snjalltækjum. Þær hafa ákveðið gildistímabil og renna út af því loknu. Vafrakökur geta geymt upplýsingar um tölfræði og stillingar notanda svo dæmi sé tekið. Hér má finna nánari upplýsingar um vafrakökur og lögmæti þeirra.
Dæmi um vafrakökur sem við notum:
- Nauðsynlegar vafrakökur. Notaðar í þeim tilgangi að tryggja að vefurinn starfi eðlilega.
Hvernig og hversu lengi geymum við persónuupplýsingar?
Við varðveitum persónuupplýsingar á öruggan hátt og í samræmi við gildandi lög og reglur.
Við varðveitum persónuupplýsingar um viðskiptavini innan EES-svæðisins.
Við geymum gögn eins lengi og nauðsynlegt er miðað við tilgang vinnslu eins og lýst er í þessari persónuverndarstefnu. Bókhaldsgögn eru varðveitt í samræmi við lög um bókhald nr. 145/1994, en samkvæmt þeim ber að varðveita bókhaldsgögn í sjö ár frá lokum viðkomandi reikningsárs.
Miðlun persónuupplýsinga
Við kunnum að miðla persónuupplýsingum til eftirfarandi aðila:
- Starfsmanna á matvælasviði við Hótel- og matvælaskólann til að veita þér umbeðna þjónustu.
- Vinnsluaðila (þjónustuveitenda) okkar á grundvelli vinnslusamninga.
- Banka og kortafyrirtækja vegna meðferðar á greiðslum.
- Innheimtuaðila vegna innheimtu skulda.
- Skattayfirvalda vegna laga eða reglna.
Öryggi persónuupplýsinga
Við leggjum áherslu á öryggi persónuupplýsinga og notum til þess viðurkenndar aðferðir. Þrátt fyrir það er mikilvægt að vita að engin aðferð við að senda gögn um Internetið eða aðferð við rafræna geymslu er 100% örugg.
Réttindi þín varðandi persónuupplýsingar
Þú nýtur ýmiskonar réttinda samkvæmt lögum í tengslum við vinnslu persónuupplýsinga, þó með nokkrum takmörkunum og undantekningum í gildandi lögum og reglum. Réttindi þín eru meðal annars eftirfarandi:
- Réttur til aðgangs
Þú átt rétt á að fá staðfest hvort við vinnum persónuupplýsingar um þig eða ekki og að fá aðgang að persónuupplýsingum þínum ef svo er. Beiðni um aðgang skal afgreidd eins fljótt og auðið er og eigi síðar en innan mánaðar frá móttöku beiðninnar. - Réttur til leiðréttingar og eyðingar
(„réttur til að gleymast“). Þú átt rétt á leiðréttingu og/eða eyðingu á persónuupplýsingum sem kunna að vera rangar eða villandi. - Réttur til að andmæla vinnslu
Þú átt rétt á að andmæla vinnslu persónuupplýsinga teljir þú að vinnslan samræmist ekki tilgangi hennar. - Réttur til takmörkunar á vinnslu
Þú átt rétt á að vinnsla persónuupplýsinga um þig verði takmörkuð í sérstökum tilvikum. - Réttur til að flytja eigin gögn
Þú átt rétt á að flytja þau gögn sem við geymum til annars ábyrgðaraðila. - Réttur til að afturkalla samþykki
Þegar vinnsla okkar á persónuupplýsingum er byggð á samþykki þínu, átt þú rétt á að afturkalla slíkt samþykki hvenær sem er.
Til að fyrirbyggja að rétturinn hér að ofan verði misnotaður, áskiljum við okkur rétt til að fara fram á að þú sýnir fram á auðkenni áður en erindið er afgreitt. Ef þú vilt nýta þér ofangreindan rétt, þá vinsamlegast sendu okkur tölvupóst á [email protected]
Vefsíður þriðja aðila
Vefurinn okkar kann að innihalda vísanir í og frá vefsíðum samstarfsaðila og annarra þriðju aðila. Vinsamlegast athugið að um þær vefsíður gilda aðrar persónuverndarreglur sem við hvorki höfum stjórn á né berum ábyrgð á. Við hvetjum þig því til að kynna þér þær reglur vandlega áður en þú sendir persónuupplýsingar í gegnum þær vefsíður.
Breytingar á persónuverndarstefnu okkar
Við áskiljum okkur rétt til þess að breyta og uppfæra persónuverndarstefnu þessa hvenær sem er. Við látum vita af slíkum breytingum hér á heimasíðu okkar.
Samskiptaupplýsingar
Ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi persónuverndarstefnu þessa, þá vinsamlegast hafðu samband á [email protected]